Á fundinn undir þessum lið mætti Þröstur Eysteinsson frá Skógrækt ríkisins.
Skógrækt er mikilvæg atvinnugrein á Fljótsdalshéraði og hafa margir af henni bæði beina og óbeina atvinnu. Skógrækt ríkisins er með mjög öfluga starfsemi á Fljótsdalshéraði, bæði á Hallormsstað og á Egilsstöðum, en á Egilsstöðum hafa aðalskrifstofur stofnunarinnar verið frá 1990. Atvinnu- og menningarnefnd hvetur ríkisvaldið til að styrkja og efla þessa starfstöð enn frekar.
Skógrækt hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár með lægri fjárveitingum til greinarinnar. Landsframleiðsla á skógarplöntum hefur hrapað úr rúmlega 6 milljón plöntum niður í um 3 milljónir plantna. Samdrátturinn hefur sett rekstur gróðrarstöðva í uppnám og er nú svo komið að flestar eiga í töluverðum rekstrarerfiðleikum og sumar hafa þegar hætt störfum. Þetta hefur valdið því að ársverkum í gróðrastöðvum hefur fækkað verulega og verktökum fækkað í gróðursetningu og girðingavinnu. Þessi mikli samdráttur á framleiðslu skógarplantna undanfarin ár mun hafa alvarleg áhrif á afkomu hinna ýmsu greina sem byggja afkomu sína á skógrækt og skógarvinnslu.
Atvinnu- og menningarnefnd telur mjög mikilvægt að ríkisvaldið bregðist strax við með aukningu á fjármagni til plöntuframleiðslu og gróðursetningar, svo hægt sé m.a. að standa við gerða samninga og ræktunaráætlanir. Þá vekur atvinnu- og menningarnefnd athygli á að stærri hluti af kostnaði við framleiðslu á plöntum og nýræktun skóga eru laun sem skila fjárframlögum til baka til ríkis og sveitarfélaga í formi skatta og gjalda.
Skógrækt er mikilvæg atvinnugrein á Fljótsdalshéraði og hafa margir af henni bæði beina og óbeina atvinnu. Skógrækt ríkisins er með mjög öfluga starfsemi á Fljótsdalshéraði, bæði á Hallormsstað og á Egilsstöðum, en á Egilsstöðum hafa aðalskrifstofur stofnunarinnar verið frá 1990. Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og hvetur ríkisvaldið til að styrkja og efla þessa starfstöð enn frekar.
Skógrækt hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár með lægri fjárveitingum til greinarinnar. Landsframleiðsla á skógarplöntum hefur hrapað úr rúmlega 6 milljón plöntum niður í um 3 milljónir plantna. Samdrátturinn hefur sett rekstur gróðrarstöðva í uppnám og er nú svo komið að flestar eiga í töluverðum rekstrarerfiðleikum og sumar hafa þegar hætt störfum. Þetta hefur valdið því að ársverkum í gróðrarstöðvum hefur fækkað verulega og verktökum fækkað í gróðursetningu og girðingavinnu. Þessi mikli samdráttur á framleiðslu skógarplantna undanfarin ár mun hafa alvarleg áhrif á afkomu hinna ýmsu greina sem byggja afkomu sína á skógrækt og skógarvinnslu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og telur mjög mikilvægt að ríkisvaldið bregðist strax við með aukningu á fjármagni til plöntuframleiðslu og gróðursetningar, svo hægt sé m.a. að standa við gerða samninga og ræktunaráætlanir. Þá vekur bæjarstjórn athygli á að stærri hluti af kostnaði við framleiðslu á plöntum og nýræktun skóga eru laun sem skila fjárframlögum til baka til ríkis og sveitarfélaga í formi skatta og gjalda.