Bæjarráð Fljótsdalshéraðs beinir því til ríkisvaldsins að leita allra leiða til þess að ríkisjarðir séu setnar og tryggja að samfella sé í búrekstri þeirra jarða sem hafa verið í nýtingu. Í ljósi stöðu dreifbýlis Fljótsdalshéraðs er það sveitarfélaginu sérstaklega mikilvægt að þessar kostajarðir séu setnar.
Kynnt drög að tímabundnu tilraunaverkefni um almenningssamgöngur á leiðinni Egilsstaðaflugvöllur - Hallormsstaður.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við SSA um verkefnið. Jafnframt verði gerð könnun meðal hópferðaleyfishafa á Héraði um áhuga þeirra á því.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn fari í sumarleyfi eftir næsta fund sinn sem verður 15. júní, til og með 9. ágúst. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verði 17. ágúst og þar næsti fundur verður 6. september.
Jafnframt leggur bæjarráð til að bæjarstjórn veiti bæjarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu mála, sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi.
Bæjarráð mun funda eftirtalda daga með fullnaðarafgreiðsluumboð: 20.6, 27.6, 4.7, 11.7. og 8.8.