Fullorðnir nemendur í tónlistarskólunum

Málsnúmer 201611073

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 246. fundur - 21.02.2017

Fræðslunefnd leggur til að frá og með næsta skólaári verði heimilt að innrita fullorðna nemendur á ný í tónlistarskólum sveitarfélagins og vísar m.a. til nýlega samþykktrar menningarstefnu Fljótsdalshéraðs.

Byggt verði á fyrirliggjandi tillögu um reglur fyrir fullorðna nemendur í tónlistarskólunum sveitarfélagsins. Gjaldskrá fullorðinna verður afgreidd með frumvinnu við fjárhagsáætlun í maí nk.

Að svo stöddu verði ekki gert ráð fyrir viðbótarkostnaði vegna þessa á árinu 2017.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.