Ósk um samstarf við Ferðamálastofu vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks.

Málsnúmer 201606126

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 347. fundur - 27.06.2016

Lagður fram tölvupóstur, dags. 23. júní 2016, frá Ferðamálastofu þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélög vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks.

Bæjarráð samþykkir að tilnefnda atvinnu- menningar- og íþróttafulltrúa sem tengilið og vísar málinu til hans til frekari vinnslu.

Atvinnu- og menningarnefnd - 38. fundur - 22.08.2016

Fyrir liggja til kynningar gögn frá Ferðamálastofu þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélög vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks.