Björn Ingimarsson bæjarstjóri kynnti viðbrögð við auglýsingu sveitarfélagsins, þar sem gamla íbúðarhúsið í Hólshjáleigu var auglýst til sölu. Frestur til að skila tilboðum rann út 29. mars.
Tvö tilboð bárust í íbúðarhúsið, ásamt fyrirspurnum frá fleiri aðilum.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við hæstbjóðanda, Kristínu A. Atladóttur, á grundvelli tilboðs hennar í íbúðarhúsið.
Í bæjarráði kom fram að tvö tilboð bárust í gamla íbúðarhúsið á Hólshjáleigu, auk fyrirspurna frá fleiri aðilum. Frestur til að skila inn tilboðum rann út 29. apríl.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn, að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við hæstbjóðanda, Kristínu A. Atladóttur á grundvelli tilboðs hennar í íbúðarhúsið.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að gera drög að kaupsamningi um íbúðarhúsið í Hólshjáleigu, ásamt sambyggðu útihúsi, og viðauka við gildandi leigusamning við þriðja aðila, vegna þess hluta húsnæðisins sem í dag er í útleigu. Jafnframt verði byggingarfulltrúa falið að gera drög að lóðaleigusamningi.
Eftirfarandi tillaga lög fram: Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að gera drög að kaupsamningi um íbúðarhúsið í Hólshjáleigu, ásamt sambyggðu útihúsi, og viðauka við gildandi leigusamning við þriðja aðila, vegna þess hluta húsnæðisins sem í dag er í útleigu. Jafnframt verði byggingarfulltrúa falið að gera drög að lóðaleigusamningi.
Tvö tilboð bárust í íbúðarhúsið, ásamt fyrirspurnum frá fleiri aðilum.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við hæstbjóðanda, Kristínu A. Atladóttur, á grundvelli tilboðs hennar í íbúðarhúsið.