Fræðslunefnd leggur áherslu á að nauðsynlegt og reglubundið viðhald á húsnæði og lóð fari fram. Nefndin leggur jafnframt áherslu á að fylgst verði með að þeir sem sjá um þrif sinni því á ásættanlegan hátt. Leikskólastjóri mun upplýsa nefndina um framgang mála í haust. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn tekur undir með fræðslunefnd og leggur áherslu á að nauðsynlegt og reglubundið viðhald á húsnæði og lóð fari fram. Bæjarstjórn leggur jafnframt áherslu á að fylgst verði með að þeir sem sjá um þrif sinni því á ásættanlegan hátt. Leikskólastjóri mun upplýsa nefndina um framgang mála í haust.