Samþykktir fyrir Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs á að endurskoða haustið 2013, eins og fram kemur í þeim.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu menningar- og íþróttanefndar samþykkir bæjarstjórn að samþykktirnar gildi áfram en verði teknar til endurskoðunar haustið 2014.
Fyrir liggja samþykktir fyrir Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að samþykktir fyrir Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs verði teknar til endurskoðunar en þær eru í meginatriðum frá 2012. Nefndin felur starfsmanni að taka saman gögn um miðstöðina og vinna að tillögum um samþykktir sem lagðar verði fyrir nefndina.
Menningar- og íþróttanefnd leggur til að samþykktirnar gildi áfram en verði teknar til endurskoðunar haustið 2014.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.