Daníel Arason tónlistarskólastjóri fylgdi eftir tilögu sinni að fjárhagsáætlun ársins 2014. Fram kom að nemendur eru 132 við skólann í dag og 6,7 stöðugildi kennara eru við skólann. Fjárhagsáætlun skólans verður afgreidd með heildarfjárhagsáætlun fræðslusviðs fyrir árið 2014.
Kynnt tillaga að fjárhagsáætlun Tónlistarskólans á Egilsstöðum 2014. Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna og vísar afgreiðslu hennar til bæjarráðs með heildarfjárhagsáætlun fræðslumála fyrir árið 2014. Samþykkt samhljóða.
Fjárhagsáætlun skólans verður afgreidd með heildarfjárhagsáætlun fræðslusviðs fyrir árið 2014.