Gangbrautir á Egilsstöðum

Málsnúmer 201308068

Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs - 100. fundur - 28.08.2013

Gangbrautir á Egilsstöðum
Erindi dagsett 20.ágúst 2013 þar sem Halldór Örvar Einarsson Selási 26 leggur fram tillögu að gangbrautir á gatnamótum í þéttbýli Egilsstaða verði færðar um 20-50 m. frá þeim.

Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar bréfritara fyrir ábendingarnar en vísar erindinu til umfjöllunar í vinnuhóp um umferðaröryggi.

Samþykkt með handauppréttingu

Vinnuhópur um umferðaröryggismál - 6. fundur - 16.10.2013

Gangbrautir á Egilsstöðum
Erindi dagsett 20.ágúst 2013 þar sem Halldór Örvar Einarsson Selási 26 leggur fram tillögu að gangbrautir á gatnamótum í þéttbýli Egilsstaða verði færðar um 20-50 m. frá þeim. Málið var áður á dagskrá í skipulags- og mannvirkjanefnd 28.08.2013.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Vinnuhópurinn þakkar ábendingarnar. Hópurinn bendir á 2. mgr. 12.gr. umferðarlaga, en þar segir: "Ganga skuli þvert yfir akbraut og að jarnaði sem næst gatnamótum".

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 186. fundur - 06.11.2013

Í vinnslu á vegum skipulags- og mannvirkjanefndar.