Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til fyrirliggjandi drög að samningum við eftirfarandi íþróttafélög verði endurnýjaðir: Ungmennafélagið Þrist, Skíðafélagið í Stafdal, Flugklúbb Egilsstaða og Skotveiðifélag Austurlands. Þá leggur nefndin til að gerðir verði samningar við Hestamannafélagið Freyfaxa og Lyftingafélag Austurlands í samræmi við fyrirliggjandi drög að samningum. Endurskoða þarf samstarfssamning sveitarfélagsins og Akstursíþróttaklúbbsins Start og er starfsmanni falið að vinna málið áfram.
Leggur nefndin til að gerðir verði eins árs samningar við ofangreind félög í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2018. Íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmanni jafnframt að skoða fyrirkomulag stuðnings sveitarfélagsins við íþrótta- og tómstundafélög til lengri tíma litið.
Í ljósi þeirra upplýsinga sem nýlega hafa birst um kynferðisbrot gegn konum undir myllumerkinu #metoo, m.a. innan íþróttahreyfingarinnar á Íslandi, leggur íþrótta- og tómstundanefnd áherslu á að þau íþrótta- og tómstundafélög sem njóta stuðnings sveitarfélagsins setji sér siðareglur og geri viðbragðs- og fræðsluáætlanir hvað varðar m.a. kynferðisofbeldi, kynferðislega áreitni og hvers konar ofbeldi. Tekið verði á þessum þáttum sérstaklega í samningum við félögin sem taka gildi frá næstu áramótum.
Nefndin leggur jafnframt til að fulltrúar sveitarfélagsins og áðurnefndra félaga setjist niður svo fljótt sem auðið er og fari yfir þessi mál og mögulega aðkomu og aðstoð sveitarfélagsins við slíka vinnu.
Auk þess felur íþrótta- og tómstundanefnd starfsmanni að fara yfir ferla og áætlanir varðandi hvers kyns ofbeldi með forstöðufólki þeirra stofnana sem undir nefndina heyra.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
2.Samstarfssamningur Fljótsdalshéraðs og Golfklúbbs Fljótsdalshéraðs
Fyrir liggja drög að endurskoðuðum samningi við Golfklúbb Fljótsdalshéraðs. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að fyrirliggjandi drög að samningi verði samþykkt.
Fyrir liggur tölvupóstur frá Önju Sæberg frá 6. janúar 2018 þar sem hún lýsir yfir áhuga á skautasvæði fyrir börn.
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar Önju fyrir erindið og tekur undir það að gaman væri að halda úti skautasvæði fyrir börn. Þó er ekki gert ráð fyrir slíku svæði á vegum sveitarfélagsins skv. starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar á þessu ári.
Ungmennafélagið Þrist, Skíðafélagið í Stafdal, Flugklúbb Egilsstaða og Skotveiðifélag Austurlands.
Þá leggur nefndin til að gerðir verði samningar við Hestamannafélagið Freyfaxa og Lyftingafélag Austurlands í samræmi við fyrirliggjandi drög að samningum.
Endurskoða þarf samstarfssamning sveitarfélagsins og Akstursíþróttaklúbbsins Start og er starfsmanni falið að vinna málið áfram.