Skautasvæði

Málsnúmer 201801059

Íþrótta- og tómstundanefnd - 38. fundur - 24.01.2018

Fyrir liggur tölvupóstur frá Önju Sæberg frá 6. janúar 2018 þar sem hún lýsir yfir áhuga á skautasvæði fyrir börn.

Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar Önju fyrir erindið og tekur undir það að gaman væri að halda úti skautasvæði fyrir börn. Þó er ekki gert ráð fyrir slíku svæði á vegum sveitarfélagsins skv. starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar á þessu ári.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.