Kl. 15:30 var haldinn kynningarfundur í fjarfundi fyrir bæjarfulltrúa, þar sem farið var yfir fyrirliggjandi tillögur að viðbrögðum vegna Covid-19 og atvinnuástandinu í kjölfar þess. Jafnframt var farið yfir þá viðauka við fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs 2020, sem lagt er til að bæjarstjórn samþykki á þessum aukafundi bæjarstjórnar.
1.Hugmyndir og ábendingar að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Björn Ingimarsson bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu aðgerðum sem mótaðar hafa verið hjá Fljótsdalshéraði, sem viðbrögð og viðspyrna við breyttum aðstæðum í atvinnulífinu í kjölfar Covid-19. Fram kom m.a. að lögð er áhersla á að skapa tímabundin störf í sumar fyrir bæði námsfólk og einstaklinga sem kunna að hafa fallið út af vinnumarkaði vegna samdráttar er rekja má til Covid-19. Áhersla verður lögð á störf er tengjast umhverfismálum, þjónustu við barnafjölskyldur, þróun stjórnsýslu og þjónustu almennt við íbúa sveitarfélagsins.
Aðrir sem til máls tóku undir þessum lið voru: Anna Alexandersdóttir, Björg Björnsdóttir, Gunnar Jónsson, Stefán Bogi Sveinsson, Gunnhildur Ingvarsdóttir, Stefán Bogi Sveinsson og Berglind Harpa Svavarsdóttir.
Að öðru leyti er vísað til liðar 2 í þessari fundargerð hvað varðar samþykktar aðgerðir sveitarfélagsins og kostnað við að mæta þeim.
Fyrirliggjandi er tillaga að viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2020. Viðaukinn er gerður til að mæta breyttum forsendum í rekstri sveitarfélagsins vegna Covid-19 faraldursins sem gengið hefur yfir heimsbyggðina undanfarnar vikur.
Til máls tóku: Björn Ingimarsson, sem kynnti viðaukann og lagði fram tillögu að bókunum. Aðrir sem til máls tóku um þennan lið voru: Anna Alexandersdóttir, Björg Björnsdóttir, Stefán Bogi Sveinsson, Gunnhildur Ingvarsdóttir, Gunnar Jónsson, Anna Alexandersdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Hannes Karl Hilmarsson, Björg Björnsdóttir og Gunnhildur Ingvarsdóttir.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn samþykkir framlagðan viðauka 1 við fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2020, ásamt fjármögnun hans.
Helstu breytingar frá samþykktri áætlun: (í þús. kr.) 00-010 Útsvarstekjur
-9.186 21-230 Þróun stjórnsýslu -2.260 27-xxx Óvenjuleg útgjöld -2.000 31-850 Eignasjóður v. viðhald -10.000 Reiknaðir fjármagnsliðir og afskriftir A hluta 13.158 Reiknaðir fjármagnsliðir og afskriftir B hluta 14.385
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir hér með á fundi sínum þann 24. apríl 2020 að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga á árinu 2020 að höfuðstól allt að kr. 260.000.000,-, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum ársins sem fela í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Birni Ingimarssyni, bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs, kt. 301254-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.