Atvinnu- og menningarnefnd

94. fundur 28. október 2019 kl. 17:00 - 18:00 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir formaður
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir aðalmaður
  • Óðinn Gunnar Óðinsson starfsmaður
  • Arngrímur Viðar Ásgeirsson varamaður
  • Dagur Skírnir Óðinsson varamaður
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson skrifstofustjóri

1.Umsókn um styrk vegna leiksýningar í mars 2020

Málsnúmer 201910135

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 21. október 2019, frá Leikhópnum Lottu þar sem óskað er eftir styrk vegna leiksýningar á Egilsstöðum í mars 2020.

Atvinnu- og menningarnefnd vekur athygli á að menningarstyrkir fyrir 2020 verða auglýstir til umsóknar um miðjan nóvember. Nefndin hvetur Leikfélagið Lottu til að senda inn umsókn þá.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Störf stofnana ríkisins á landsbyggðinni

Málsnúmer 201910157

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 24. október 2019, frá Sigrúnu Hólm Þórleifsdóttur, þar sem hvatt er til þess að stjórnvöld bindi ekki skrifstofustörf við ákveðna bæjarkjarna.

Atvinnu- og menningarnefnd minnir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar varðandi byggðaaðgerðir á landsbyggðinni þar sem talað er um að ráðuneyti og stofnanir ríkisins skuli auglýsa störf án staðsetningar, eins og kostur er.
Starfsmanni falið að koma erindi þessu til ráðuneytis byggðamála.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Menningarstyrkir Fljótsdalshéraðs 2020

Málsnúmer 201910112

Fyrir liggja reglur um úthlutun menningarstyrkja, tillaga að auglýsingu og hugmynd að skiptingu fjármagns til úthlutunar til menningarverkefna.

Atvinnu- og menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlög til menningarstyrkja á árinu 2020. Nefndin felur starfsmanni að auglýsa til umsóknar menningarstyrki fyrir 16. nóvember 2019 sem stefnt er að verði afgreiddir fyrir 1. febrúar 2020.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Atvinnumálasjóður Fljótsdalshéraðs, reglur og eyðublöð

Málsnúmer 201909075

Fyrir liggja reglur er varða Atvinnumálasjóð Fljótsdalshéraðs.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að vísun í Sveitarstjórnarlög í grein 10 í reglum Atvinnumálasjóðs verði uppfærð í samræmi við Sveitarstjórnarlög frá 2011.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Snorraverkefnið 2020, beiðni um stuðning

Málsnúmer 201910132

Fyrir liggur bréf frá Snorrasjóði, dagsett 10. október 2019, þar sem óskað er eftir stuðningi við framkvæmd Snorraverkefnisins á árinu 2020.

Atvinnu-og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði styrkt um kr. 75.000 sem tekið verði af lið 0589 á árinu 2020. Vonast er til að ungmenni á vegum verkefnisins heimsæki Austurland.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 18:00.