Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki II að Húsey. Umsækjandi og forsvarsmaður er Laufey Ólafsdóttir.
Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa. Einnig jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarráð jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um. Bæjarráð vekur þó athygli leyfisveitenda á ábendingum byggingarfulltrúa sem fram koma í umsögn hans.
Bæjarráð bendir jafnframt á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.