Krabbameinsforvarnir og þjónusta við krabbameinssjúklinga

Málsnúmer 202001063

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 497. fundur - 20.01.2020

Bæjarstjóri kynnti málið og sagði frá samtölum sínum við forsvarsmenn krabbameinsfélagsins, þar sem þeir kynntu verkefnið.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 506. fundur - 16.03.2020

Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að ganga frá samningi við Krabbameinsfélagið varðandi vinnuaðstöðu fyrir starfsmann þess.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 509. fundur - 06.04.2020

Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi samning við Krabbameinsfélag Íslands um ráðgjöf og forvarnir gegn krabbameini á Austurlandi.
Bæjarráð fagnar því að Krabbameinsfélag Íslands skuli nú staðsetja starfsmann á Austurlandi til að sinna þessari þjónustu.