Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði félags- og barnamálaráðherra)

Málsnúmer 201902050

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 457. fundur - 11.02.2019

Bæjarráð samþykkir að fela verkefnisstjóra innleiðingar persónuverndarlöggjafar að fara yfir frumvarpsdrögin og koma með ábendingar ef þurfa þykir.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 458. fundur - 18.02.2019

Að fengnu áliti verkefnastjóra innleiðingar persónuverndarlöggjafar er það niðurstaða bæjarráðs að veita ekki umsögn um málið.