Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaldur)

Málsnúmer 201902002

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 457. fundur - 11.02.2019

Afgreiðslu málsins vísað til næsta fundar bæjarráðs.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 458. fundur - 18.02.2019

Töluverð umræða hefur orðið um málið á síðustu tveimur fundum bæjarráðs og er niðurstaðan sú að um málið eru skiptar skoðanir.
Mun því bæjarráð ekki veita umsögn um málið en hvetur til opinnar umræðu um það, enda hníga gild rök að báðum niðurstöðum.