Umsókn um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar /Stóra - Sandfell

Málsnúmer 201811104

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 286. fundur - 05.12.2018

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki II að Stóra-Sandfelli. Umsækjandi er Röskvi ehf, Jóhanna F. Kristjánsdóttir.

Byggingarfulltrúa hafa ekki borist fullnægjandi gögn og getur hann því ekki gefið jákvæða umsögn. Umsögn frá heilbrigðiseftirlitinu hefur heldur ekki borist.


Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn frestar málinu, en mun gefa umsögn þegar rétt gögn hafa borist og umsagnir byggingarfulltrúa og heilbrigðiseftirlits á grundvelli þeirra, liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 289. fundur - 20.02.2019

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki II að Stóra-Sandfelli. Umsækjandi er Röskvi ehf, ábyrgðarmaður Jóhanna Fjóla Kristjánsdóttir.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa fyrir allt að 38 gesti. Einnig jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.