Egilsstaðaskóli - nemendamál

Málsnúmer 201808040

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 264. fundur - 14.08.2018

Ruth Magnúsdóttir, skólastjóri Egilsstaðaskóla, kynnti erindið. Ljóst er að vegna aðstæðna í nemendahópnum hefur skapast aukin stuðningsþörf. Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leyti að brugðist verði við þeirri þörf, en fer þess á leit að leitast verði við að mæta afleiddum kostnaði innan samþykktrar fjárhagsáætlunar eftir því sem unnt er.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 270. fundur - 27.11.2018

Ruth Magnúsdóttir kynnti erindið. Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leyti þau úrræði sem skólinn hefur gripið til.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.