Umsókn um rekstrarleyfi fyrir sölu veitinga/ Bar smiðja ehf.- Austri brugghús

Málsnúmer 201803027

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 422. fundur - 26.03.2018

Þar sem umsögn Heilbrigðiseftirlits liggur ekki fyrir fundinum samþykkir bæjarráð að vísa málinu til afgreiðslu til bæjarstjórnar. Umsagnarfrestur er til 18. apríl.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 272. fundur - 04.04.2018

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu veitinga í flokki III að Fagradalsbraut 25 Egilsstöðum. Umsækjandi er Askur Taproom, Friðrik B. Magnússon.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa og Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.
Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.