Yfirlit yfir barnaverndartilkynningar 2017

Málsnúmer 201705017

Félagsmálanefnd - 154. fundur - 10.05.2017

Yfirlit yfir umfang og eðli barnaverndartilkynninga fyrstu fjóra mánuði ársins, á þjónustusvæði Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, lagt fram til kynningar. Þar kemur fram að alls hafa borist 17 tilkynningar vegna 11 barna á tímabilinu. Tíu tilkynninganna eru vegna vanrækslu barna, fimm vegna ofbeldis og tvær tilkynningar eru vegna áhættuhegðunar barns.

Félagsmálanefnd - 156. fundur - 15.08.2017

Yfirlit yfir barnaverndartilkynningar á fyrri hluta ársins 2017 er lagt fram til kynningar.