Lagt er fyrir nefndina erindi Þórhalls Pálssonar fyrir hönd eiganda Stóruvíkur. Stefnt er að því að halda áfram sama rekstri á svæðinu og verið hefur síðan húsin voru byggð, þ.e. reka þar skammtímaútleigu til almennings og ferðafólks. Því er farið á leit að skipulags- og byggingarfulltrúa að líta til þess að um enga eðlisbreytingu er að ræða hvað starfsemi á svæðinu varðar og fallist á að mæla með jákvæðri umsögn til sveitarstjórnar þegar til rekstrarleyfisumsóknar kemur. Jafnframt að breyting um landnotkunarflokk úr frístundasvæði í svæði fyrir verslu- og þjónustu verði gerð við næstu reglulegu endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að senda erindið til umsagnar hjá Skipulagsstofnun.
Lagt er fyrir erindið, Eigendaskipti landsspildunnar Stóruvíkur á Völlum, ásamt orlofshúsum sem þar eru. Í erindi er farið þess á leit að enga eðlisbreytingu er að ræða hvað starfssemi á svæðinu varðar og jafnframt að breyting um landnotkunarflokk úr frístundasvæði í svæði fyrir verslun- og þjónustu verði gerð við næstu reglulegu endurskoðun aðalskipulags. Á fundi nr. 69 var Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að senda erindið til umsagnar hjá Skipulagsstofnun. Þann 19.maí sl. barst umsögn frá Skipulagsstofnun, en niðurlag umsagnar var svohljóðandi: Aðalskipulagsbreyting er forsenda þess að hægt sé að gefa út rekstrarleyfið og ekki hægt að vísa henni til næstu endurskoðunar aðalskipulagsins.
Með vísan í erindi og innsenda umsögn vísar Umhverfis- og framkvæmdanefnd erindinu til úrlausnar hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa sbr.2.mgr. 36.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Stefnt er að því að halda áfram sama rekstri á svæðinu og verið hefur síðan húsin voru byggð, þ.e. reka þar skammtímaútleigu til almennings og ferðafólks.
Því er farið á leit að skipulags- og byggingarfulltrúa að líta til þess að um enga eðlisbreytingu er að ræða hvað starfsemi á svæðinu varðar og fallist á að mæla með jákvæðri umsögn til sveitarstjórnar þegar til rekstrarleyfisumsóknar kemur. Jafnframt að breyting um landnotkunarflokk úr frístundasvæði í svæði fyrir verslu- og þjónustu verði gerð við næstu reglulegu endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að senda erindið til umsagnar hjá Skipulagsstofnun.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.