Styrkbeiðni vegna vatnstjórns á vegi að æfingasvæði SKAUST.

Málsnúmer 201704018

Íþrótta- og tómstundanefnd - 30. fundur - 26.04.2017

Fyrir liggur tölvupóstur frá Bjarna Þór Haraldssyni, formanni SKAUST, þar sem gerð er grein fyrir skemmdum sem urðu á vegi að æfingasvæði félagsins og beðið um styrk til lagfæringa á veginum. Málinu er vísað til bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 384. fundur - 08.05.2017

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við fulltrúa SKAUST og fá betri upplýsingar um málið.