Vegvísir samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara

Málsnúmer 201701104

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 244. fundur - 24.01.2017

Fræðslunefnd felur grunnskólastjórum að hlutast til um að mótaðir verði starfshópar innan skólanna fyrir 1. febrúar nk.í samráði við fræðslustjóra. Hópunum verði falið að fara yfir þær spurningar sem fram koma í útgefnum Vegvísi og setja fram svör við þeim sem síðan verði unnið með í miðlægum starfshópi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 245. fundur - 07.02.2017

Farið yfir þau verkefni og það vinnuferli sem felst í vegvísinum.

Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að funda með skólastjórum grunnskólanna og leggja grunn að verkáætlun, sem verði kynnt fyrir nefndinni á næsta fundi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.