Umsókn um nýtt rekstrarleyfi/Sænautasel - Merki

Málsnúmer 201608116

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 152. fundur - 02.09.2016

Lagt er fram erindi sýslumanns, Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga.
Óskað er eftir umsögn á umsókn til reksturs gistingar í flokki 2, sumarhús í Sænautasel fyrir fjóra gesti ásamt leyfis til reksturs veitingastofu og greiðasala og kaffihúss. Umsókn er dagsett 26.8.2016.

Skipulags- og byggingarfulltrúi veitir jákvæða umsögn.

Samþykkt.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 353. fundur - 05.09.2016

Lagt er fram erindi Sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn með vísan í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 á umsókn um nýtt rekstrarleyfi í flokki II - sumarhús kaffihús, veitingahús og greiðasala að Sænautaseli.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.