Uppfærðar reglur um sérstakar húsaleigubætur 2016

Málsnúmer 201608093

Félagsmálanefnd - 146. fundur - 23.08.2016

Drög að uppfærðum reglum um sérstakar húsaleigubætur eru lögð fram og samþykkt.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 242. fundur - 07.09.2016

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu félagsmálanefndar samþykkir bæjarstjórn framlögð drög að uppfærðum reglum um sérstakar húsaleigubætur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.