Almenningssamgöngur og skólaakstur/útboð

Málsnúmer 201606086

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 237. fundur - 22.06.2016

Undir þessum lið situr Freyr Ævarsson, Vífill Björnsson og fulltrúar úr umhverfis- og framkvæmdanefnd.

Lögð er fram útboðs- og verklýsing fyrir almenningssamgöngur og skólaakstur á Fljótsdalshéraði, fundargerð frá opnun tilboða ásamt tilboðum til yfirferðar og samþykktar.

Fram hafði komið athugasemd við að bæjarfulltrúi taki þátt í útboði á vegum bæjarins. Á grundvelli þeirrar athugasemdar var leitað eftir áliti lögfræðings og fyrir liggur lögfræðiálit frá Jóni Jónssyni hrl. varðandi þá athugasemd.

Fræðslunefnd samþykkir að tilboð Páls Sigvaldasonar slf. verði metið ógilt samkvæmt fyrirliggjandi lögfræðiáliti.

Samþykkt með 4 atkvæðum (HEG, ÁÓ, JBV,AÁ), 1 sat hjá (GI).

Fræðslunefnd samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðendur á einstökum akstursleiðum skólaaksturs.

Nefndin leggur áherslu á að áður en gengið verði frá samningum liggi fyrir sakavottorð allra bílstjóra og tryggt sé að öll skilyrði skv. reglum um skólaakstur séu uppfyllt.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 50. fundur - 22.06.2016

Lögð er fram útboðs- og verklýsing fyrir almenningssamgöngur og skólaakstur á Fljótsdalshéraði ásamt tilboðum til yfirferðar og samþykktar.

Undir þessum lið situr Freyr Ævarsson, Helga Guðmundsdóttir og Fræðslunefnd.

Í opnunarfundargerð útboðsins kom fram athugasemd frá Hlyni Bragasyni varðandi þátttöku bæjarfulltrúa í útboði á vegum sveitarfélagsins.

Fyrir liggur lögfræðiálit frá Jóni Jónssyni hrl. varðandi athugasemd Hlyns Bragasonar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Umhverfis- og framkvæmdanefnd metur tilboð Páls Sigvaldasonar slf. ógilt samkvæmt fyrirliggjandi lögfræðiáliti.

Já sögðu 4 (ÁK, GRE, ÁB, EK) 1 situr hjá (BS).

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að samið verði við:

1.1 Almenningssamgöngur í þéttbýli:
Sæti hópferðir ehf. með 23.400.000,-kr
1.2.1 Akstur úr félagsmiðstöð:
Sæti hópferðir ehf. með 1.440.000,-kr
1.2.2 Egilsstaðir - Brúarás:
Sæti hópferðir ehf. með 8.000.000,-kr

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 347. fundur - 27.06.2016

Stefán Bogi Sveinsson vakti athygli á vanhæfi sínu og var það samþykkt. Vék hann af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð að samið verði við eftirtalda aðila um almenningssamgöngur, á grundvelli tilboða þeirra í akstur á einstökum leiðum. Miðað er við kostnaðartölur pr. ár:

1.1 Almenningssamgöngur í þéttbýli:
Sæti hópferðir ehf. með 23.400.000,-kr

1.2.1 Akstur úr félagsmiðstöð:
Sæti hópferðir ehf. með 1.440.000,-kr

1.2.2 Egilsstaðir - Brúarás:
Sæti hópferðir ehf. með 8.000.000,-kr

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 347. fundur - 27.06.2016

Sigrún Blöndal og Stefán Bogi Sveinsson, vöktu athygli á vanhæfi sínu og var það samþykkt. Viku þau af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarráð tekur undir með fræðslunefnd og samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðendur á einstökum akstursleiðum skólaaksturs og að tryggt verði að öll skilyrði skv. reglum um skólaakstur séu uppfyllt.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.