Lögð er fram skýrsla Landsvirkjunnar LV-2016-074, Vatna- og sundfugla á Jökulsá á Dal og endur á Lagarfljóti og vötnum á Fljótsdalsheiði árið 2016 til kynningar, dags. 01.06.2016.Tillaga að bókun:Skýrsla LV-2016-074 lögð fram til kynningar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Þar sem enn eru svo miklar breytingar / sveiflur í fjölda fugla á rannsóknarsvæðinu leggur nefndin til að áfram verði fylgst með þróun mála. Að öðru leiti lagt fram til kynningar.
Bæjarráð tekur undir það álit umhverfis- og framkvæmdanefndar, að þar sem enn eru svo miklar breytingar / sveiflur í fjölda fugla á rannsóknarsvæðinu, sé eðlilegt að áfram verði fylgst með þróun mála. Að öðru leyti lagt fram til kynningar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Þar sem enn eru svo miklar breytingar / sveiflur í fjölda fugla á rannsóknarsvæðinu leggur nefndin til að áfram verði fylgst með þróun mála.
Að öðru leiti lagt fram til kynningar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.