Lögð fram fjárhagsáætlun Austurbrúar fyrir árið 2016. Bæjarráð tekur undir þau markmið sem fram koma í áætluninni. Jafnframt telur bæjarráð mikilvægt að ársfjórðungslega berist sveitarfélögum á Austurlandi upplýsingar um stöðu verkefna og fjárhag stofnunarinnar.
Á fundi bæjarráðs var lögð fram fjárhagsáætlun Austurbrúar fyrir árið 2016.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn er sammála bæjarráði og tekur undir þau markmið sem fram koma í áætluninni. Jafnframt telur bæjarstjórn mikilvægt að ársfjórðungslega berist sveitarfélögum á Austurlandi upplýsingar um stöðu verkefna og fjárhag stofnunarinnar.