Beiðni um styrk og samstarf vegna námskeiðs í grasvallafræðum

Málsnúmer 201510111

Íþrótta- og tómstundanefnd - 15. fundur - 28.10.2015

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 15. október 2015, frá Kára Jósefssyni, þar sem óskað er eftir stuðningi við að senda starfsmann Golfklúbbs Fljótsdalshéraðs á námskeið í grasvallafræðum.

Íþrótta og tómstundanefnd telur sér ekki fært að verða við erindinu að svo stöddu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 226. fundur - 04.11.2015

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundanefndar staðfest.