Fyrir liggur tillaga um merkingu ofan við aðalinnganginn í Hlymsdali.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar hafnar bæjarstjórn framkominni hugmynd um merkingu Hlymsdala. Bæjarstjórn leggur til að húsið verði merkt í samræmi við merkingar annars húsnæðis sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar framkominni hugmynd um merkingu Hlymsdala.
Nefndin leggur til að húsið verði merkt í samræmi við merkingar annars húsnæðis sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.