Fyrir liggur styrkumsókn frá Kvenfélaginu Björk, undirrituð af vegna bókarútgáfu á sögu félagsins, en félagið varð 85 ára í vor.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að Kvenfélagið Björk verði styrkt um kr. 50.000 til ritunar sögu félagsins. Styrkurinn verði tekið af lið 05.89.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að Kvenfélagið Björk verði styrkt um kr. 50.000 til ritunar sögu félagsins, sem verði tekið af lið 05.89.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.