Erindi í tölvupósti dagsett 13.05. 2015, þar sem Sýslumaðurinn á Austurlandi kt.410914-0770, með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, óskar eftir umsögn byggingarfulltrúa um gistileyfi í fl.1. Umsækjandi er Sigríður Sigmundsdóttir kt.051261-4299. Starfsstöð er Lagarfell 3, Fellabæ.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu byggingarfulltrúa. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.