Erindi í tölvupósti dagsett þar sem Sýslumaðurinn á Austurlandi kt. 410914-0770, með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, óskar eftir umsögn byggingarfulltrúa um gistileyfi í fl. 1. Umsækjandi er Sigrún Birna Kristjánsdóttir kt. 120854-6159. Starfsstöð er Faxatröð 3, Egilsstöðum.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins í kjallara og á jarðhæð hússins. Þar sem bílageymsla er ekki tilbúin til útleigu, þá gefur byggingarfulltrúi neikvæða umsögn um hann.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu byggingarfulltrúa. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.