Lagt fram boð til bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs á vinabæjamót í Skara 5. - 7. júní nk. Þar kemur fram að Skara sér um uppihald fyrir 4 pör frá hverjum vinabæ, en heimilt er hverju sveitarfélagi að senda fleiri á sinn kostnað.
Bæjarráð samþykkir að vísa því til næsta fundar bæjarráðs að tilnefna fulltrúa sína á vinabæjamótið.
Málinu var vísað til þessa fundar frá síðasta bæjarráðsfundi.
Bæjarráð leggur til að Sigrún Blöndal forseti bæjarstjórnar og Björn Ingimarsson bæjarstjóri verði fulltrúar Fljótsdalshéraðs á vinabæjamótinu, ásamt mökum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn samþykkir að Sigrún Blöndal forseti bæjarstjórnar og Björn Ingimarsson bæjarstjóri verði fulltrúar Fljótsdalshéraðs á vinabæjamótinu, ásamt mökum.
Bæjarráð samþykkir að vísa því til næsta fundar bæjarráðs að tilnefna fulltrúa sína á vinabæjamótið.