Lögð fram fyrirspurn frá Halldóri Halldórssyni varðandi húsnæði í hans eigu á neðri hæð Lyngáss 12. Bæjarráð sér ekki að svo stöddu forsendur til að sveitarfélagið kaupi eða leigi umrætt húsnæði.
Lagt fram kauptilboð Fljótsdalshéraðs í kjallara hússins að Lyngási 12, fastanúmer 217-5934. Kaupverð nemur kr. 4.400.000. Bæjarráð samþykkir kaupin og felur bæjarstjóra að ganga frá þeim. Fjármögnun vísað til viðauka 2.
Í bæjarráði var lagt fram kauptilboð Fljótsdalshéraðs í kjallara hússins að Lyngási 12, fastanúmer 217-5934. Kaupverð nemur kr. 4.400.000.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn kaupin og felur bæjarstjóra að ganga frá þeim. Fjármögnun vísað til viðauka 2.
Bæjarráð sér ekki að svo stöddu forsendur til að sveitarfélagið kaupi eða leigi umrætt húsnæði.