Fyrir liggur bréf dagsett 12. september frá Kór Egilsstaðakirkju, undirritað af Ástrúnu Einarsdóttur, þar sem óskað er eftir styrk til kórsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að Kór Egilsstaðakirkju verði styrktur um kr. 30.000 sem verði tekið af lið 05.89.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að Kór Egilsstaðakirkju verði styrktur um kr. 30.000 sem verði tekið af lið 05.89.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.