Samþykkt fyrir náttúruverndarnefnd og náttúruverndarlög - kynning

Málsnúmer 201409073

Náttúruverndarnefnd - 1. fundur - 16.09.2014

Fyrir liggja samþykkt fyrir náttúruverndarnefnd, gildandi náttúruverndarlög og náttúruverndarlög sem fyrirhugað er að taki gildi þann 1.7.2015.

ÁS leggur fram eftirfarandi bókun: Ég geri athugasemd við hversu sjaldan nefndinni er ætlað að funda og tel að gera eigi ráð fyrir a.m.k. sex fundum á ári.

Að öðru leyti lagt fram til kynningar.