Fræðslunefnd telur verkefnið "Allir lesa" áhugavert og hvetur skólastjórnendur til að skoða mögulega þátttöku og vekja athygli á verkefninu. Jafnframt leggur fræðslunefnd til að verkefnið kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn tekur undir með fræðslunefnd og telur verkefnið "Allir lesa" áhugavert og hvetur skólastjórnendur til að skoða mögulega þátttöku og vekja athygli á verkefninu. Jafnframt leggur fræðslunefnd til að verkefnið verði kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins.