Til umræðu er verklag við úttektir á girðingum meðfram vegum. Fyrir liggur skrá yfir úttektir fyrir árið 2011.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að kalla eftir staðfestingu viðkomandi landeiganda, um að lokið hafi verið við viðhald girðinga samkvæmt reglugerð nr. 325/1995 um girðingar með vegum.
Til umræðu á fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar var verklag við úttektir á girðingum meðfram vegum. Fyrir liggur skrá yfir úttektir fyrir árið 2011.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að kalla eftir staðfestingu viðkomandi landeiganda, um að lokið hafi verið við viðhald girðinga samkvæmt reglugerð nr. 325/1995 um girðingar með vegum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að kalla eftir staðfestingu viðkomandi landeiganda, um að lokið hafi verið við viðhald girðinga samkvæmt reglugerð nr. 325/1995 um girðingar með vegum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.