Á þessu ári eru 40 ár liðin síðan Íþróttafélagið Höttur var stofnað.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að frumkvæði íþrótta- og tómstundanefndar samþykkir bæjarráð að fela Birni Ingimarssyni bæjarstjóra og Óðni Gunnari Óðinssyni atvinnu- menningar- og íþróttafulltrúa, í samráði við formann Hattar, að skoða með hvaða hætti þessara tímamóta verður minnst.
Íþrótta og tómstundanefnd leggur til að Fljótsdalshérað minnist þessara tímamóta með viðeigandi hætti.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.