Minjasafn, merking Safnahussins á Egilsstöðum.

Málsnúmer 201405137

Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs - 117. fundur - 28.05.2014

Erindi í tölvupósti dagsett 12.05.2014 þar sem Unnur Birna Karlsdóttir bendir á að merkja þurfi staðsetningu Safnahússins á Egilsstöðum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að fela starfmönnum nefndarinnar að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.