Erindi í tölvupósti dagsett 28.04.2014 þar sem Sýslumaðurinn á Seyðisfirði kt. 490169-5479, með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, óskar eftir umsögn bæjarstjórnar vegna umsóknar um gistileyfi í fl. II. Umsækjandi er Sæmundur Guðberg Guðmundsson kt. 271260-5989. Starfsstöð er Gíslastaðir, Fljótsdalshéraði.
Byggingarfulltrúi mælir með veitingu leyfisins. Bókun þessi var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs þann 16. maí. 2014.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.