Frumvarp til laga um eflingu tónlistarnáms(nám óháð búsetu)

Málsnúmer 201404041

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 254. fundur - 09.04.2014

Lagður fram tölvupóstur, dags. 4. apríl 2014, frá Guðjóni Bragasyni fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga, með beiðni um umsögn vegna frumvarps til laga um eflingu tónlistarnáms (nám óháð búsetu)

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og fræðslufulltrúa að taka saman umsögn um málið og senda á nefndasvið Alþingis fyrir tilskilinn frest.