Menningar- og íþróttanefnd, frávikagreining fyrir 2013

Málsnúmer 201404003

Menningar- og íþróttanefnd Fljótsdalshéraðs - 54. fundur - 08.04.2014

Fyrir liggur frávikagreining fyrir árið 2013, fyrir málaflokkana menning og íþróttir, þar sem gera skal grein fyrir frávikum í fjárhagsáætlun ef einhver eru.

Menningar- og íþróttanefnd lýsir yfir ánægju með niðurstöðu ársreiknings 2013 vegna málaflokka nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.