Reglur fyrir Fasteignafélag Iðavalla

Málsnúmer 201403174

Fasteignafélag Iðavalla ehf. - 2. fundur - 25.03.2014

Lögð drög að notkunarreglum fyrir reiðhöllina, gjaldskrá. Auk þess voru lögð drög að samningi við umsjónaraðila með reiðhöllinni. Ritara falið að vinna samningsdrög og reglur fyrir næsta fund.
Ákveðið að stefna að fundi með fulltrúa Freyfaxa fimmtudaginn 3. apríl kl. 12.00.

Fasteignafélag Iðavalla ehf. - 3. fundur - 04.04.2014

Farið yfir drög að reglum um notkun reiðhallarinnar og þær staðfestar með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.