Fundargerð 814. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 201403154

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 254. fundur - 09.04.2014

Í tilefni af lið 6 í fundargerðinni kom fram að á Alþingi liggur nú fyrir frumvarp til laga um varnir gegn gróðureldum. Bæjarráð samþykkir að beina því til Brunavarna á Austurlandi að fara yfir efni frumvarpsins og eftir atvikum að gera umsögn um það.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.