Landsmót UMFÍ, 50 ára og eldri árið 2016

Málsnúmer 201403006

Menningar- og íþróttanefnd Fljótsdalshéraðs - 54. fundur - 08.04.2014

Fyrir liggur bréf frá Ungmennafélagi Íslands, dagsett 28. febrúar 2014, þar sem vakin er athygli á því að auglýst hafi verið eftir umsóknum frá sambandsaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd Landsmóts UMFÍ 50+ árið 2016.

Lagt fram til kynningar.