Erindi dags. 18.12.2013 þar sem Björn Sveinsson kt.160265-4189, sækir um byggingarleyfi fyrir veitingaskála á lóð nr. 13 í Möðrudal.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn að heimila skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar tilskilin gögn liggja fyrir.
Bæjarstjórn ítrekar kröfu nefndarinnar um að tillaga að deiliskipulagi fyrir Möðrudal verði lögð fyrir nefndina.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkvæðum, en 1 var fjarverandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að heimila skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar tilskylin gögn liggja fyrir.
Nefndin krefst þess að tillaga að deiliskipulagi fyrir Möðrudal verði lögð fyrir nefndina.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.