Drög að hækkun grunnfjárhæðar fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2014 lagt fram til umfjöllunar. Nefndin samþykkir að hækkun sem nemur vísitölu neysluverðs í desember 2013, úr kr. 144.508. fyrir einstakling á mánuði í kr. 149.725. Fyrir hjón / sambýlisfólk hækkar upphæðin úr kr. 231.212. á mánuði í kr. 239.560. Hækkunin tekur gildi frá og með 1. janúar 2014.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu félagsmálanefndar samþykkir bæjarráð hækkun sem nemur vísitölu neysluverðs í desember 2013, úr kr. 144.508. fyrir einstakling á mánuði í kr. 149.725. Fyrir hjón / sambýlisfólk hækkar upphæðin úr kr. 231.212. á mánuði í kr. 239.560. Hækkunin tekur gildi frá og með 1. janúar 2014.